Gluggar

Þegar kemur að því að smíða góðan glugga sem á að standa af sér íslenskt veðurfar, þá er margt sem hafa þarf í huga. Lykilþættir í framleiðslunni okkar eru, án efa, kunnátta og reynsla starfsmanna, fullkominn vélakostur, fyrirmyndaraðstaða og fyrsta flokks hráefni. Allar okkar afurðir fara í gegnum strangt eftirlitskerfi til að tryggja að bestu gæðum sé náð.

Meginmarkmið smiðjunnar og starfsmanna hennar er að skila frá sér vöru sem viðskiptavinir eru ánægðir með.  Óskir viðskiptavina eru hafðar að leiðarljósi þegar kemur að því að hanna útlit og virkni gluggans.