Gler

Gler og glerjun

Glerverksmiðjan Samverk á Hellu framleiðir allt gler fyrir Selós. Samkvæmt byggingarreglugerð nr. 441/1998 skal nota einangrunargler með U-gildi 2,0 W/m2K eða lægra í íbúðarhúsnæði og annað fullhitað húsnæði (lofthiti 18°C eða hærri) þar sem fólk dvelst. Einangrunargler lækkar hitakostnaðinn. Það minnkar hitatapið en hleypir inn sólarorkunni og sólarljósinu. Velja má um fjölmargar gerðir glers frá Samverk s.s. sólvarnargler, hljóðvarnargler, samlímt öryggisgler, hamrað, sandblásið, reyklitað og svo mætti lengi telja. Eðalhús / Glugga- og Hurðasmiðja Selfoss bendir fólki á að skoða vefsíðu Samverk ehf þar sem hægt er að verða sér úti um allar upplýsingar um gler og eiginleika þess.

Við sjáum um að glerja fyrir þig hvort sem það eru gluggar eða hurðir. Sú vinnuregla sem við höfum tamið okkur er í fullu samræmi við ábygðarskilmála Samverks á Hellu. Við byrjum á því að grunna fölsin með Þangrunni, því næst er settur DAFA – glerjunarborði 4mmx10mm, glerið sett í falsið á þar til gerða plastkubba. Í glerlistann er settur ísagaður EPDM-þéttilisti. Glerlistarnir eru síðan skrúfaðir í með 4mmx30mm koparskrúfum.