Íhlutir glugga

Íhlutir í gluggana frá okkur eru valdir með það í huga að þeir virki vel, líti vel út, og falli vel inní hönnun glugganna.  Þannig nýtur glugginn sín, án þess að íhlutir séu stór partur af útliti hans.

Gluggabrautir í opnanleg fög eru þannig gerðar að opnanleiki er mikill.

Læsingar eru flestar með þeirri stillingu að hægt er að loka á tvo mismunandi vegu: annars vegar venjuleg lokun og hins vegar næturstilling; þar sem örlítil opnun hleypir súrefni inn þrátt fyrir að glugginn sé lokaður.