Smíðaviður
Fura
Furan sem notuð er við vinnsluna er smíðaviður af flokki III. Algengt er að furan komi frá Skandinavíu. Algengast er að gluggar séu unnir úr furu en alltaf er eitthvað um að hurðakarmar og opnanleg fög séu einnig úr furu.
Mahogny
Mahognyviðurinn sem notaður er við vinnsluna er smíðaviður af flokki III eða betri. Viðurinn kemur bæði frá Suður-Ameríku og einnig frá Afríku. Algengast er að fólk velji sér Mahogny í hurðir og eins er alltaf að færast í vöxt að gluggar og opnanleg fög séu einnig unnin úr þessu fallega efni.
Oregon Pine
Pineviðurinn sem notaður er við vinnsluna er smíðaviður af flokki II eða betri. Viðurinn kemur frá, eins og nafnið gefur til kynna, Oregon í Bandaríkjunum. Oregon pine er langvinsælasti viðurinn við vinnslu opnanlegra faga og hurða.
Límtré FuraLímtré er samlímt hráefni og hefur þann augljósa kost að vera kvistalaust. Efnið hentar mjög vel í glugga, opnanleg fög og hurðir sem skal sprautumála.
Geymsla Viðartegunda
Kjörrakastig ofangreindra viðartegunda til vinnslu glugga og hurða er 10-12% raki. Það er því mjög mikilvægt að tryggja að rétt rakastig sé í viðnum frá því að hann kemur inn til okkar og þangað til að fullunnin vara er afgreidd. Óunnið efni er því geymt á köldum lager og síðan eru öflug rakatæki sem viðhalda æskilegu rakastigi viðarins meðan á vinnslu, samsetningu og frágangi stendur.