Yfirborðsmeðhöndlun
Lykilatriði í endingu glugga og hurða er rétt yfirborðsmeðhöndlun. Ef rétt er farið að er hægt að lengja endinguna töluvert. Augljóst er að timbrið sjálft stendur ekki af sér öll veður án þess að fá góða vörn.
Öll okkar framleiðsla fær ákveðna meðhöndlun byggða á óskum viðskiptavina um útlit. Þessi meðhöndlun tryggir vörn gegn þeim aðstæðum sem við fáumst við á Íslandi. Vandvirkni er í þessu, eins og svo mörgu öðru, lykillinn að góðum árangri.
Selós státar af fyrirtaks aðstöðu til þess að tryggja rétta meðferð og yfirborðsmeðhöndlun á framleiðsluvörum sínum.