Um okkur

Stofndagur fyrirtækisins var 14. desember 1973.
Stofnendur þess voru Hilmar Þ. Björnsson, Skarphéðinn Sveinsson og Stefán Jónsson allir húsasmíðameistarar.

Markmið fyrirtækisins frá upphafi er að taka að sér nánast allt sem tengist byggingavinnu, smíði einbýlishúsa, raðhúsa, fjölbýlishúsa og opinberra bygginga ásamt almennri innréttingasmíði.

Fyrsta verkefni Selós sf. var bygging íþróttahúss, kennslustofa og stjórnbyggingar Gagnfræðaskólans á Selfossi.

Samhliða þessu verkefni reis verkstæðishús fyrirtækisins að Eyravegi 51, þar sem Selós rak verkstæði í 35 ár. Yngri starfsmenn fyrirtækisinst tóku smátt og smátt við.  Árið 2010 bættust nýjir hlutafar í hópinn og fyrirtækið flutti starfsemi sína að Gagnheiði 72 í nýlegt húsnæði sem áður hýsti Glugga og hurðasmiðju Selfoss. Keyptar voru vélar til glugga og hurðaframleiðslu og búum við yfir einhverjum allra besta vélakosti landsins til þeirrar framleiðslu.

Fyrirtækið hefur á þeim árum sem það hefur starfað leitað fanga víða um land, sérstaklega með innréttingasmíði.

Verk Selósmanna liggja víða, á Nesjavöllum, Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, Landsbankanum í Reykjavík, Íslandsbanka, Smárabíó, Egillshöll, MS, Matvælastofnun,  íþróttahúsum, sundlaugum, leikskólum, grunnskólum og háskólanum svo eitthvað sé nefnt. Einnig höfum við smíðað innréttingar glugga og hurðir fyrir fjöldan allan af einstaklingum og fyrirtækjum.